Harpa og Kalkofnsvegur
Byggingarár: 2011
Verkkaupi: Totus og Reykjavíkurborg
Hönnuðir: Landslag ehf í samvinnu við Batteríið arkitektar
Samstarfsaðilar: Henning Larsen Architects og Ólafur Elíasson
Verkfræðingar: Mannvit og Verkís Verktakar: ÍAV og BJ-verktakar. Ljósmyndir Binni ljósmyndari og ÞH
Verkið er tilnefnt til norrænna verðlauna á Arkitekturmässan í Gautaborg 2011 í flokki „best new public space“.
Við hönnun lóðarinnar var unnið með skírskotun í sögu svæðisins frá því að vera ósnortin fjara þar sem lækurinn rann til sjávar yfir í það að vera hafnarsvæði. Spegiltjarnir skapa hólmatilfinningu og fjarlægð frá aðliggjandi umferðargötu. Brýrnar yfir tjarnirnar eru í minningu bryggjanna sem stungust þarna áður í sjófram. Torgið skiptist í þrjú svæði, aðkomutorg, fjölnotatorg og dvalarsvæði í krikanum sem byggingin myndar og snýr vel við sól og skjóli. Svart malbik á meginfletinum undirstrikar hafnaryfirbragðið og gefur byggingunni þann rólega forgrunn sem hún þarf. Á regnvotum dögum breytist torgið í einn stóran spegil sem byggingin glitrar í.
Skoðið teikningar…



















